Facebook
Sequences | reykjavik | 6–15 October 2017
Days
Hours
Min
Sec
24.10.14 09:00

Alfredo Cramerotti verður sýningarstjóri Sequences VII 2015

 

Alfredo Cramerotti hefur verið valinn til að sýningarstýra sjöundu Sequences myndlistarhátíðinni sem fram fer í Reykjavík 10.-19. apríl 2015. Sequences er metnaðarfullur, alþjóðlegur myndlistartvíæringur og er eina hátíðin á Íslandi sem sérhæfir sig í myndlist. Hátíðin hefur að markmiði að skapa vettvang fyrir framsækna myndlist með sérstaka áherslu á tímatengda miðla á borð við gerninga, hljóðlist og vídeólist og að þjóna fjölbreyttum hópi gesta og þátttakenda; listamanna, fagfólks og almennings.

 

Eftir mikla velgengni Sequences VI undir stjórn Markúsar Þórs Andréssonar var ákveðið að nýta áhrifamátt og kraft hátíðarinnar og leita út fyrir landsteinana að næsta sýningarstjóra. Alfredo Cramerotti er reyndur sýningarstjóri og rithöfundur og hefur fengist við fjölbreytt verkefni á sviði myndlistar. Árið 2010 var hann einn sýningarstjóra evrópska samtímalistatvíæringsins Manifesta 8 sem fram fór á Spáni, 2013 stýrði hann þjóðarskála Maldív-eyja sem og skála Wales á Feneyjatvíæringnum í myndlist og hlaut mikið lof fyrir og nú gegnir hann stöðu forstöðumanns MOSTYN, stærstu samtímaliststofnunar Wales. Edda Kristín Sigurjónsdóttir verður aðstoðarsýningarstjóri hátíðarinnar og Edda Halldórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hátíðarinnar.

 

Um 25 íslenskir og erlendir myndlistarmenn munu taka þátt í hátíðinni sem fer fram á sýningarstöðum víðs vegar um Reykjavíkurborg og í almenningsrýmum. Líkt og á síðustu Sequences-hátíð verður sérstök Utandagskrá kynnt samhliða aðaldagskránni þar sem listamönnum og sýningarstöðum gefst kostur á að standa fyrir sýningum og viðburðum en sú tilraun gafst vel á síðustu hátíð þar sem sýnd voru meðal annars verk Matthews Barney. Tekið verður á móti skráningum til Utandagskrár og verður hún auglýst sérstaklega síðar.

 

Mynd: Páll Ívan frá Eiðum